🧶 WinSam Crochet
도안 목록으로 돌아가기
Passing Light Tee
sub
sub
sub
Pullover유료 도안

Passing Light Tee

디자이너: Skonsa

난이도0.0
바늘 크기
3.5mm
실 굵기중간 가는 실 (5합)
(Sport (12 wpi))
좋아요80
ADVERTISEMENT
**This pattern will be available in English on the 9th of August.** **Passing Light** er léttur bolur sem hleypir bæði ljósi og lofti í gegn og hentar því vel sem sumarflík á heitum dögum. Ég hef líka notað hann innandyra allt árið því mynstrið gerir hann mjög sparilegan. Byrjað er á bakstykkinu og prjónað fram og tilbaka niður að handvegi. Bakstykkið er geymt og lykkjur teknar upp af öxl. Axlastykkin eru prjónuð í sitt hvoru lagi þar til tengt er saman í hálsmálinu. Framstykkið er prjónað fram og tilbaka niður að sama stað í mynstri og á bakstykki og tengt í hring. Bolurinn er prjónaður þar til réttri sídd er náð. Lykkjur eru teknar upp í handvegi fyrir ermar og þær prjónaðar beint niður án úrtöku þar til þeirri sídd er náð sem óskað er eftir. **Stærðir** Stærðirnar sýna ummál á flíkinni í cm eftir að hún hefur verið þvegin og lögð slétt, Ég mæli með að velja stærð með lágmark 10 cm umframvídd. Sniðið á bolnum er mjög kassalaga svo það hentar ekki vel fyrir þrönga flík. Bolirnir á fyrstu 2 myndunum eru með u.þ.b. 28 cm umframvídd. Stærð 1 **2** 3 **4** 5 **6** 7 **8** 9 Vídd bolur 85 **93** 102 **111** 120 **129** 138 **147** 156 cm Vídd ermi 38 **40** 42 **47** 49 **53** 56 **58** 62 cm **Garn og fylgihlutir** Svartur bolur: Isager Trio 2 (50% Hör, 30% bómull, 20 % Lyocell, 210m, 50g) Drapplituð peysa: Isager Bomulin (65% bómull, 25% hör, 210m, 50g) Silki frá Knitting for Olive hentar líka vel og eins Hörgarn frá Uppfit. - 3.5 til 4.5 mm prjónar 80 cm og 40cm langir. Veljið þá prjónastærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu. - Færanleg prjónamerki - Upphafs prjónamerki (Upm) - Málband - Nál til að ganga frá endum **Áætlað garnmagn í metrum** Stærð 1 **2** 3 **4** 5 **6** 7 **8** 9 stutterma 600 **650** 750 **850** 950 **1050** 1150 **1300** 1450 m síðerma 650 **750** 850 **950** 1050 **1150** 1250 **1400** 1550 m **Erfiðleikastig** Meðalerfitt. Uppskriftin hentar fyrir mjög vana prjónara.

* 이 도안은 유료이므로 Ravelry에서 별도 구매가 필요합니다.


ADVERTISEMENT